5.6.2009 | 12:38
Hvers konar mengun?
Eru við að tala um blýmengun eða flúormengun, kvikasilfursmengun, koltvísýringsmengun eða koleinsýringsmengun? Er þetta þýsk eða frönsk mengun eða kemur þessi mengun frá Berlusconi? Er þetta spænsk mengun? Samræmist þessi mengun reglugerðum og stöðlum Evrópusambandsins?Mig vantar sárlega betri upplýsingar um þessa ESB mengun svo ég geti brugðist við á réttan hátt
Meginlandsmistur yfir landinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.6.2009 | 12:31
Ó, metanleg orka
Var ekki pælingin að vinna metanólið úr vetni annars vegar og hinsvegar úr koltvísýringi sem félli til sem úrgangur frá álverum eða öðrum stórverksmiðjum? Það hlýtur að vera umhverfisvænna í stað þess að byggja nýja metanólverksmiðju. Er ekki líka möguleiki á því að nýta hitaorkuna frá stórum verksmiðjum eins og Járnblendinu, Álverum, fiskimjölsbræðslum og fiskþurrkunum? Það er gríðarleg orka sem fer til spillist út um allt og svo eru það varmaskiptakerfi sem þarf að nýta miklu víðar. Svo má ekki gleyma metan-gasinu sem getur knúið venjulegar bensínvélar með litlum breytingum. Metan-gas má framleiða út um allt með einföldum hætti og eru bændur nú þegar farnir að nýta úrgang frá búfénaði til þess að framleiða orku sem knýr vinnuvélar á búi þeirra. Möguleikarnir eru gríðarlegir og felast ekki bara í að virkja fallvötnin.
H
Metanól gæti skilað tugum milljarða á ári | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)